Verðskrá Modernus 2010


Allir nýir vefir fá tveggja mánaða fría fag (professional) vefmælingu í kjölfar umsóknar. Eftir það berst tilboð í árgjald til 6 eða 12 mánaða. Meðalárgjald fyrirtækjavefja í mælingu hjá Modernus (um 700 vefir) er um kr. 15.000 á ári. Hagkvæmast er að kaupa öll þrjú kerfin (allur pakkinn) því saman gefa þau mestan árangur í vefrekstrinum. Árgjald fyrir allan pakkann er aðeins kr. 29.900 auk vsk, eða 37.225 með virðisaukaskatti. Innifalið er Svarbox m. 2 leyfum, vefmæling og vöktun á vefþjónum.


Varðhundurinn®

Varðhundurinn® vaktkerfi sem vaktar uppi- og tengitíma vefjarins á 5 mínútna fresti 24/7. Aðvaranir eru sendar með tölvupósti og öruggu SMS. Varðhundurinn er gott kerfi fyrir hýsingaraðila og metnaðarfulla fyrirtækjavefi, sem krefjast allt að 100% uppitíma.

  1. Stofngjald Kr. 0
  2. Mánaðargjald Kr. 985
  3. Útsend aðvörun með forgangs SMS Kr. 59

Allur pakkinn: Varðhundurinn® fylgir frítt með Virkri vefmælingu og Svarboxinu þegar allur pakkinn er keyptur. Aðeins er greitt eitt stofngjald.


Svarbox® samskipta- og þjónustukerfi fyrir vefi

Svarbox® er samskiptakerfi fyrir vefi frá Modernus. Kerfið gerir almenningi kleift að spjalla við starfsmenn fyrirtækja og stofnana á vefjum þeirra, og sín í milli, endurgjaldslaust.

Svarboxforritð (Svarbox Client) má sækja frítt á forsíðu modernus.is. Aðeins leyfishafi greiðir fyrir fjölda samtímanotenda. Hægt er að nota Svarboxforritið í vinnunni, heima við og út um allan heim. Svarboxið sparar símakostnað viðskiptavina og þjónustuveitandans, um leið og það hækkar þjónustustig viðkomandi fyrirtækis.

Um 50.000 samtöl fara nú þegar um kerfið mánaðarlega að frátöldum samtölum milli starfsmanna, sem ekki eru vistuð. Þá eykst einnig vinnugleði starfsmanna og stjórnunarmöguleikar yfirmanna eftir því sem færni notenda í notkun kerfisins eykst. Tryggingastofnun (tr.is) Tollurinn (tollur.is) Íslandspóstur (postur.is) og ISNIC eru meðal stærstu notenda kerfisins.

  1. Stofngjald. 1 tími, uppsetning leyfisins í gagnagrunni. Kr. 12.437
  2. Svarbox kerfisleiga, eitt notandaleyfi innifalið. árgjald Kr. 16.900
  3. Hvert viðbótarleyfi fyrir samtímanotanda, árgjald Kr. 9.947

5% afsláttur er veittur fyrir 10-29 leyfi og 8% afsláttur fyrir 30 leyfi og fleiri.

Allur pakkinn: Lágmarksárgjald fæst ef allur pakkinn er keyptur, þ.e. vöktun, vefmæling og Svarbox. Allur pakkinn m. 3 svarboxleyfum kostar kr. 29.900 + vsk. fyrir smærri fyrirtæki.


Virk vefmæling® Modernus.

Allir nýir vefir fá tvo mánuði frítt í kjölfar umsóknar. Árgjald tekur mið af stærð vefjanna. Lágmarksárgjald er kr. 7.888. Meðalárgjald fyrirtækjavefja í mælingu hjá Modernus er aðeins kr. 18.695 m.vsk. Berið saman verð og þjónustu við erlenda aðila s.s. Catalyst frá Omniture og Index Tools.

Stærri vefir fyrirtækja og stofnana greiða fast gjald mánaðarlega, eða árlega, samkvæmt samningi.

Aðgangur að Samræmdri vefmælingu® er innifalinn, en 25 efstu vefirnir standa straum af auglýsingu á lista 25 vinsælustu vefjanna á hverjum þriðjudegi í Morgunblaðinu kr. 623 á viku.

Samræmd vefmæling hóf göngu sína 1. maí 2001.


Allur pakkinn fyrir minni vefi - bestu kaupin

Allur pakkinn frá Modernus inniheldur öll þrjú kerfin á lágmarksverði: Svarbox®, Virka vefmælingu® og Varðhundinn®. Allur pakkinn er öflugt stjórntæki sem enginn alvöruvefur ætti að vera án. Vefurinn verður fyrst alvörumarkaðs- og þjónustutæki með beinum samskiptum við notendur í stað þess að vera aðeins "póstkort" á Internetinu með upplýsingum um símanúmer og heimilisfang fyrirtækisins.

  1. Stofngjald fellt niður
  2. "Allur pakkinn" (Svarbox, vefmæling, vöktun.) kr. 29.900 + vsk. fyrir smærri fyrirtæki.