Enn meiri upplýsingar um notkun vefjarins

Framfarir. Vefmæling Modernus tekur nú hröðum framförum eftir að nýi Vertica gagnagrunnurinn var tekinn í gagnið í upphafi mánaðarins. Í dag var sett inn ný og mun nákvæmari greining á landfræðilegri staðsetningu notenda vefjanna. Með henni má sjá frá hvaða borgum og bæjum lesendur koma, hvaðanæfa að á jörðinni, en ekki aðeins á Íslandi eins og hingað til. Nú kætast frændur vorir Færeyingar, en þeir höfðu sérstaklega beðið um þetta.

Nýjar tölur á 10 mínútna fresti. Gagnagrunnur Modernus spýtir út nýjum tölum á tíu mínútna fresti allan sólarhringinn. Þess má geta að Google teljarinn (fría útgáfan af Urchin teljaranum) uppfærir sig á minnst 6 klukkustunda fresti.

Toppsíður. Liðurinn sýnir nú fjölda lesenda per síðu og hvernig þeir dreifast yfir daginn, eða tímabilið sem er valið. Smellið fyrst á liðinn Toppsíður og síðan á stækkunarglerið við síðunafnið. Þá kemur upp tafla sem sýnir hversu margir sóttu síðuna og hvenær. Hjá mjög stórum vefjum, með þúsundir vefskjala í mælingu, getur tekið allt að 30 sekúndur að sækja gögnin.

Kyn og aldur. Mikilvæg viðbót, sem verið er að vinna að, er kerfi sem gerir kyn- og aldursdreifingu notenda vefjanna sýnilega. Meira um það í júní/júlí.

Úrræði við reglubrotum. Modernus hefur nú fengið heimild frá Samráðshópi um Samræmda vefmælingu til þess að taka út tölur vefsvæða, sem augljóslega uppfylla ekki reglur Samræmdrar vefmælingar. Þetta á t.d. við um vefhluta sem ekki uppfylla reglur um samhæft útlit og leiðarkerfi við aðalvef. Auðvitað þarf Modernus fyrst að gefa viðkomandi vef tækifæri á að betrumbæta sig, og vefurinn getur í öllum tilvikum kært niðurstöðu Modernus til Samráðshópsins, sem fellir svo endanlegan úrskurð.

Eftir að nýja kerfið var tekið í notkun er Modernus mögulegt að taka tölur tilgreindra vefhluta eða vefskjala út úr heildartölum viðkomandi vefjar og birta "hreinsaðar" og samanburðarhæfar tölur á lista Samræmdrar vefmælingar. Þetta er mikið framfaraskref, sem eykur enn trúverðugleika Samræmdrar vefmælingar. Til stendur að útbúa fleiri tegundir af útgáfulistum, en fyrst nú er það eiginlega mögulegt án mikils tilkostnaðar. Hugmyndin er að birta lista yfir mest lesnu fréttirnar og vinsælustu "bloggara" landsins.

 

Modernus.

Skrifað 17. May 2010 16:27