Ný gögn á 10 mínútna fresti

Modernus tók nýlega í notkun geysiöflugan sérbyggðan rannsóknar-gagnagrunn frá Vertica fyrir Samræmda vefmælingu. Grunnurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, lóðrétt hannaður (e. vertical), sem þýðir að leita má jafnharðan lóðrétt og lárétt að upplýsingum í honum. Gagnagrunnur Modernus er yfir 4 milljarðar lína að dýpt um þessar mundir og stækkar stöðugt. Þetta er of mikill línufjöldi fyrir hefbundna gagnagrunna að vinna með, sérstaklega þar sem svara þarf fyrirspurnum frá notendum á sem skemmstum tíma.

Ný gögn á 10 mínútna fresti. Vertica-grunnurinn skilar nýjum gögnum út til notenda á 10 mínútna fresti allan sólarhringinn, en Modernus átti orðið erfitt með að standa undir gagnaskilum á 60 mínútna fresti með gamla MySQL-grunninum. Hann hafði þó verið notaður frá árinu 2001, lengst af með ágætum árangri. Til þess að sjá nýjustu upplýsingar, og lista yfir 10 nýjustu notendur vefjarins svo dæmi sé tekið, þarf að skrá sig inn á https://login.modernus.is.

Lýðfræðilegar og fjárhagslegar upplýsingar tvinnaðar saman við vefmæligögn. Vefmæling Modernus verður á næstu mánuðum þróuð þannig að samtvinna má upplýsingar úr öðrum kerfum við vefmæligögnin. Þá verður hægt að svara spurningum eins og: "Hversu margir Akureyringar smelltu á borðann minn á bestavefnum.is fyrir hádegi á fimmtudag og bókuðu miða á tónleikana sem þar voru auglýstir, og hvernig var kyn- og aldursdreifing þeirra?" Þegar þessi þjónusta verður tilbúin geta vefirnir í samstarfi við auglýsendur notað upplýsingarnar til að ákvarða umboðslaun til vefjanna, en slíkt fyrirkomulag er þegar orðið að veruleika úti í hinum stóra heimi. Einar Bjarni Halldórsson yfir-yfirforritari Modernus, þróar nýju lausnina í samvinnu við Flemming Kaj Larsen hjá fix.is :).

Skrifað 14. Jun 2010 11:07