Ítarlegri morgunskýrslur og nýr auglýsingateljari

Í stillingum vefmælingarinnar er að finna liðinn "Morgunskýrslur Modernus". Þar undir má bæta við viðtakendum fyrir daglegar, vikulegar og mánaðarlegar skýrslur. Hver og einn notandi getur síðan ákveðið innihald sinna skýrslna með því að velja liðinn "Innihald skýrslna" undir "mínum stillingum". Morgunskýrslur Modernus eru sendar út í þúsundatali. Þær innihalda nú fleiri liði en áður, t.d. skiptingu notenda milli borga og bæja innanlands svo eitthvað sé nefnt.

Til þess að geta bætt við notanda þarf hann að vera til í kerfinu fyrir. Nýjum notenum er bætt við undir liðnum "Notendalisti" og þar eru notendur einnig fjarlægðir.

Síðustu vikur hafa tæknimenn Modernus unnið hörðum höndum að gerð nýs og öflugs auglýsingateljara, sem mun koma sér sérstaklega vel fyrir þá vefi sem selja auglýsingar. Þessi nýi auglýsingateljari Modernus, sem lengi hefur verið beðið eftir, fer í prufukeyrslu hjá femin.is þann 12. júlí ef allt gengur eftir. 

Modernus

Skrifað 01. Jul 2010 16:44