Sólskinsdagar á Internetinu

Hvað veðurfar snertir var síðasta vika með hinu allra besta móti. Sólin lék á alls oddi og sprengdi klæðin utan af ungum sem öldnum, sem spókuðu sig afdráttarlítið á strætum, torgum og iðagrænum völlum borgarinnar. Golfvellir voru þétt setnir kylfingum í sólskinsskapi og vart sást í vatnið í sundlaugunum fyrir fagurbrúnum kroppunum sem fylltu þær bakkanna á milli.

 Áhrif blíðviðrisins leyna sér heldur ekki þegar rýnt er í nýbirtar tölur 28. viku á lista Samræmdrar vefmælingar. Tíu stærstu vefirnir sýna allir sem einn hlutfallslega lækkun á milli vikna og aðeins 2 af efstu 20 bæta við sig. Þetta eru blogcentral.is og vf.is, en hjá þeim síðarnefnda munar mestu um 40% aukningu hjá kylfingur.is, sem er eins og stendur enn mældur sem vefhluti vf.is. Góðviðrið og opna breska meistaramótið í golfi hafa líklega mikið þar um að segja. Annar íþrótta- og útivistarvefur, hlaup.is, tók jafnframt stökk milli vikna og bætir notendafjölda sinn um heil 45%!

 Gaman verður að fylgjast með framvindu mála í þessari viku, en sólin lætur engan bilbug á sér sjá og heldur áfram að senda sína björtustu geisla inn um gluggann á skrifstofu þess, er þetta ritar. Líklega skellir sá hinn sami sér í sund - nú eða jafnvel golf - eftir vinnu! :)

Post created 19. Jul 2010 10:55