Þrítugasta vinnuvika ársins hófst í dag um svipað leyti og samræmdar vefmælitölur þeirrar 29. birtust hér. Flestir vefir bæta við sig milli vikna, en þó enginn jafnhressilega og grapevine.is, sem stekkur úr 43. sæti listans upp í það 16. með ríflegri þreföldun notendafjölda milli vikna.
Eins og menn vita hefur um nokkurt skeið staðið til hjá Modernus að bjóða upp á auglýsingateljara með samræmdu sniði líkt og þekkt er orðið með almennu vefmælinguna. Einar Bjarni Halldórsson, forritari, og Flemming Kaj Larsen, hönnuður, hafa í sumar unnið ötulum höndum að gerð auglýsingateljarans og má vænta ávaxtar vinnu þeirra með haustinu. Nýi auglýsingateljarinn mun gera auglýsendum kleift að sjá nákvæmlega hversu margir smella á tiltekna auglýsingu, hve oft er smellt og hve oft auglýsingin birtist. Þá verður hægt að tilgreina ákveðið "target" eða "mark" auglýsingarinnar og skoða árangurinn sem hlutfall af þeim sem sáu auglýsing og lentu á marksíðunni. Síðar meir verður mögulegt að fylgja eftir þeim notendum sem lenda inni á síðu auglýsandans í gegnum ákveðna auglýsingu og meta þannig með nákvæmum hætti árangur hverrar auglýsingar fyrir sig. Það eru spennandi tímar framundan!
Post created 26. Jul 2010 16:15